Allt er þegar þrennt er

24.09.2007 13:25:20 / taka3

Hjálp!

Hæhæ aftur. Nú er ég búin að koma mér vel fyrir á spáni, búin að hitta slatta af fólki, fá mér spænskt símanúmer og gerast fastakúnni á kaffihúsi einu hér í grenndinni. Á meðan umskiptunum stóð var ég óneitanlega dálítið á reiki í danska kúrnum, en nú er mánudagur, og ég er byrjuð aftur af fullum krafti. Ekki seinna vænna. Það er bara eitt vandamál: ÞAÐ ER ENGINN OFN Í ÍBÚÐINNI MINNI! Þetta kann við fyrstu sýn að hljóma svona alveg bærilegt, en það verður að hafa það í huga að ég eldaði næstum því ALLT sem ég borðaði heima í ofni. Það eru því engar peanuts, ekkert grillað, engar sellerírótarfranskar, og allt verður þurrsteikt, soðið eða gufusoðið. Ef þið lumið á einhverjum góðum uppskriftum, endilega endilega deilið þeim með mér. Ég er alveg í öngum mínum! Já eða svona... Vigtin í dag sýndi 76 kíló, og skjaldbakan segir því Þetta er allt að gerast, ég er meira en hálfnuð og ákaflega ánægð með það. Endilega kommentið ef þið eruð ennþá að lesa :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 14:32:52 / taka3

afsakið hléið

Datt dálítið út úr blogg-gírnum síðustu daga. Var að vinna síðustu vikuna mína á báðum stöðunum, með tilheyrandi árekstrum við megrunarfyrirætlanir mínar. Í stuttu máli þyngdist ég um 400g í síðustu vigtun, en það var ágætlega sloppið miðað við það að ég var nýbúin að borða kvöldmat, sem er jú rétt rúmlega 400g. Með öðrum orðum stóð ég aftur í stað. Þar sem markmiðið var að missa 10kg áður en ég færi til spánar hef ég því verið að taka vel á því, ég hef eina viku til að missa 1,4 kg. Ég er ekki af baki dottin, er búin að vera dugleg í ræktinni, og er núna á fjórða 100% deginum í röð. Nú er ég líka loksins búin í vinnunni, og ekkert eftir nema að þvo, pakka, kveðja alla, og ná 10 kílóa markinu á næsta miðvikudag ;)

Ég er ekki alveg búin að átta mig á því ennþá að ég sé að fara til Spánar á næsta fimmtudag. Það er fullkomlega óraunverulegt að á sama tíma eftir viku verði ég líklega á einhverju torgi í steikjandi hita að borða ferskju og skrifa bréf til kærastans (sem er b.t.w. ákaflega svekktur yfir því að ég ætli að skilja hann eftir). Ég veit ekkert hverju ég á að pakka, eða í raun hvað ég á af mér að gera ;) Þarf eiginlega að taka smá reality check og átta mig á þessu... Ég var líka að fatta, mér til skelfingar að þetta munu vera 4 mánuðir án DDV-íss! Ég veit ekki einu sinni hvað undanrennuduft heitir á spænsku ;)

Vona að ykkur gangi öllum vel, og betur en mér ;) Ætla að skella mér á bloggrúnt, það var löngu kominn tími til!

P.S. Ég gerði mér ótrúlega góðan hádegismat í dag, túnfisksbræðing, sjá uppskriftir :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 21:18:27 / taka3

Árangur vikunnar



Ótrúlegt en satt þá tókst mér að missa 1,2 kíló í þessari viku! Þetta eru því ágætis tímamót, komin í nýjan tug, enda hljómar 79,7 svo MIKLU betur en 80,9 ;) Svo er vonandi glæstu takmarki náð í næstu viku þegar ég kveð mitt tíunda kíló. Ég get ekki ímyndað mér annað en að þessi góða orka og stuðningur frá ykkur öllum hafi eitthvað með þetta að segja!

Hliðarsporið lét ekki á sér kræla í þessari vigtun, en það var líka tiltölulega seint í vikunni svo ég má búast við því að það bíti mig í rassinn í næstu viku (bókstaflega ;) ). Þannig að nú ætla ég aldeilis að taka á því, og afmælið verður engin undantekning. Keypti mér samt DDV-pistasíuís til að gera mér glaðan dag :)

Hlakka til að heyra hvernig ykkur öllum gekk

kveðja,

Taka 3, 18 ára í síðasta sinn ;)

P.s. velkomin á linkalistann, Sara :)

» 11 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 00:52:33 / taka3

Hliðarspor

Ég missti rækilega fótfestuna í dag. Plokkfiskur með bernaise og osti, þrjár sneiðar af rúgbrauði (slæmt) með smjöri (slæmtslæmt) og meira að segja smá vanilluís með karamellusósu (slæmtslæmtslæmt) fór inn um mínar varir í kvöld. Ástæða: 12 tíma vinnudagur, kokkarnir í vinnunni sem virðast hafa einsett sér það að fita mig, og að sjálfsögðu ég sjálf, sem var algerlega reiðubúin til að nota þessar ástæður sem afsökun til að sleppa fram af mér beislinu.

Ég finn að ég er aðeins að missa tökin á danska kúrnum, eins og síðast, og eins og þar síðast. En þetta er TAKA 3. SkiptIÐ! Nú MUN ég láta þetta ganga. Held samt að það muni gera mér gott að hætta í vinnunni, enda verður mun betra tóm til að taka þetta föstum tökum út á spáni. Svo þegar ég kem heim ætla ég að reyna að finna mér einhverja hentuga 9-5 vinnu, vinnu þar sem maður hefur þann lúxus að taka sér hádegismatarpásu. Og helst vinnu þar sem freistingarnar bíða manns ekki á hverju strái. Ég veit að ég tek ábyrgð á eigin gjörðum, en sú ábyrgð felst einnig í því að þekkja veikleika sína og taka tillit til þeirra. Næstu mánuði ætla ég því að búa til verndað umhverfi, breyta um venjur og aðstæður, og bara gera þetta!

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 21:44:13 / taka3

Afmælisstemming :)

Hei, ég á afmæli á fimmtudaginn og ég er alveg í fríi í vinnunni. Datt í hug að gefa mér tíma til að búa til e-ja æðislega góða rétti, til að hafa DDV-daginn extra góðan :) Eruð þið með einhverjar uppskriftir sem ykkur finnast sérlega góðar (kökur, aðalrétti, osfrv osfrv...) Annað, ef ske kynni að ég færi út að borða, hefur einhver af ykkur hringt daginn áður og beðið um að fá DDV-vænan málsverð? Ef svo er, hvert fóruð þið, hvað fenguð þið og mikilvægast af öllu; var það gott? ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 23:47:44 / taka3

Bardaginn við dugnaðinn

Á bloggrúntinum hef ég veitt því athygli að það er eitthvað um að þið séuð að skella ykkur í ræktina á mjög ókristilegum tíma á morgnana. Þetta finnst mér alveg magnað. Mjög aðdáunarvert, og magnað. Þetta gæti ég ALDREI!

Það varð endanlega sannað í morgun þegar ég stillti vekjaraklukkuna mína á 9, og haldiði ekki að ég hafi gert mér lítið fyrir og snúsað í klukkutíma og korter! Það eru alveg 9 snús! Sem betur fer er ég farin að þekkja sjálfa mig, og hafði gefið mér góðan tíma til að snúsa, og átti ekki að mæta í vinnuna fyrr en 12. En samt, líkurnar á því að ég fari að stunda ræktina eldsnemma á morgnana eru afskaplega litlar. Til þess er ég allt of skotin í koddanum mínum. ;)

Mataræðið gengur þó afskaplega vel, búin að taka tvo glæsilega 100% daga í röð, hef meira að segja drukkið vel framyfir af vatninu. Það klúðraðist þó aðeins í kvöld þegar ég bað kokkinn í vinnunni að sjóða handa mér fisk til að hafa með grænmetinu sem ég tók með í nesti. Hann gerði sér lítið fyrir og skutlaði til mín grilluðum skötusel með villisveppum og púrtvínssósu! Þegar ég var komin með þetta í hendurnar, fannst mér hálf dónalegt að segja "nei, veistu, mig langar sko bara í soðinn fisk", svo ég borðaði skötuselinn, en laumaði villisveppunum og púrtvínssósunni í ruslið svo lítið bar á. Er manni ekki alveg fyrirgefið fyrir svona óviljandi klúður, ha?

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 23:11:02 / taka3

Léttingur vikunnar = 0,0

Já, þið lásuð rétt! Í þessari viku léttist ég hvorki né þyngdist um eitt einasta gramm. Hvílíkur húrrandi antíklæmax! Ég hefði næstum (já, næstum) kosið heldur að þyngjast pínuponsulítið. En nei, ég er nákvæmlega jafn þung og í síðustu viku. Ojæja. Ég hef aðeins verið að endurskoða mataræðið, og ég held að ég þurfi að fara að vanda mig betur. Ég var eiginlega bara orðin of sjálfsörugg, og hætti þannig að styðjast eins við matardagbókina o.s.frv. Svo ætla ég að reyna að drekka miklu meira vatn, því það hefur setið dálítið á hakanum, og að reyna að borða meira í vinnunni þó það sé erfitt, í staðinn fyrir að hakka í mig seint á kvöldin, rétt áður en ég fer að sofa, til þess eins að klára skammtinn. En ég held að ég verði að biðja um mikinn stuðning á bloggrúntinum þessa vikuna. Oft var þörf en nú er nauðsyn!

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.08.2007 21:15:18 / taka3

óður til extra 2

Ég er komin með algjört æði fyrir extra 2. Frystirinn er nú sneisafullur af gulrótarnammi, pistasíufrostpinnum og DDV vanilluís. Áður fékk ég mér yfirleitt bara extra tvö sem t.d. smá dijon sinnep á flatköku eða eitthvað. En vá, eftir að ég uppgötvaði allt þetta góða gúmmelaði sem maður má borða, þá finnst mér næstum því sjálfsögð réttindi að ég fái mér í það minnsta hálfan skammt af ís yfir daginn, og yfirleitt nota ég extra 2 alveg upp til agna. Ég þyrfti í rauninni að gæta mín, því þegar ég er komin í kjörþyngd gæti ég auðveldlega skipt þessu út fyrir annað og "hættulegra" gúmmelaði sem ég myndi gúffa í mig í tíma og ótíma. En ofsalega er það samt gott að geta fengið útrás fyrir græðgispúkan á DDV-vænan hátt. Svo er bara að gæta þess að t.d. gulrótarnammið verði enn á matseðlinum þegar markinu er náð ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 13:28:36 / taka3

Forgangsröðun



Skrifað í gær:

Ég sit hérna í eldhúsinu heima hjá kærastanum mínum, maula grillaða lúðu í rólegheitunum, og bíð eftir að sellerírótar- og rófufranskarnar séu tilbúnar. Mmm! Ég tók mér frí í vinnunni í dag og í gær, af því að ég er að flytja, og ég ákvað að taka smá af þeim tíma í að vanda mig sérstaklega vel á DDV. Og auðvitað skilar það sér! Þetta stefnir í að verða annar 100% dagur í dag, og það eina sem til þarf er að gefa sér dálítinn tíma.

Það hljómar eins og algert common sense, að ef maður ætlar að léttast fyrir alvöru, þarf maður að gefa sér tíma til að sinna því. En raunin er allt önnur. Mér hættir t.d. til að líta á þetta sem eitthvað sem ég ætla að gera í framhjáhlaupi, dunda mér svona við þetta samhliða öðrum verkefnum. En maður nær alls engum árangri ef kúrinn er það fyrsta sem fær að víkja þegar harðnar í ári. Ef þetta er eitthvað sem þú kýst að gera, og þú ert staðráðin í að ná árangri, þá verður að setja þetta í fyrsta sæti, og gera ráðstafanir til þess, taka með sér nesti í boð, skipuleggja sig, reyna að vinna minna (ef maður er vinnualki eins og ég) og umfram allt GEFA SÉR TíMA. Hætta að leyfa lífinu að hlaupa með sig í gönur, taka stjórnina sjálf/ur og leyfa ekki sjálfum sér að búa til afsakanir til að skemma fyrir

Skrifað í dag:

Mér hefur greinilega tekist svona líka ofsalega vel að rétta af kútinn því léttingur vikunnar var 1,2 kg. þrátt fyrir hliðarspor. Líklega hefur það skilað sér að ég borðaði alger ógrynni af fisk, á milli þess sem ég var í tómu rugli ;). Nú er því nokkuð raunhæft að ég nái markmiðinu mínu, 10 kílóum áður en ég fer til spánar. Hlakka til að heyra hvernig ykkur hinum hefur gengið, ég á næstum eftir að sakna sumaropnunartímans, eins óhentugur og hann er, því það er svo gaman hvað það er alltaf mikið líf á átaksbloggunum á miðvikudögum. Nú verður maður bara að fara að fylgjast enn betur með ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 00:07:03 / taka3

Aftur á sporið

100% dagur í dag, ef vatnið er ekki talið með, en miðað við önnur afrek í dag verður það að teljast nokkuð gott. Í dag var ég að fara í gegnum fataskápinn og fann fallegan kjól sem ég var hætt að passa í, og viti menn, rennilásinn flaug upp, og hann var meira að segja dálítið víður!...
Ég var næstum búin að gleyma því hvað þetta er skemmtilegt :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 11:27:01 / taka3

Andlega hliðin

Hindranir síðustu daga urðu mér að falli. Eða, réttara sagt, ég varð sjálfri mér að falli, vegna þess að ég gafst upp um leið og á móti blés. Síðustu 3 dagar voru því matardagbókarlausir, og tiltölulega stjórnlausir. Ég get alveg sagt það með sönnu að ég hefði ekki farið jafn rækilega út af sporinu ef ekki hefði verið fyrir langan vinnudag, tvær 6 tíma bílferðir á tveimur dögum (til og frá Flateyri), erfidrykkju og þá staðreynd að í húsinu sem ég var í á flateyri var ekkert í ísskápnum nema bjór og (mjög DDV-fjandsamlegir) afgangar úr erfidrykkjunni. Ég notaði þetta hinsvegar allt sem afsökun fyrir því að borða ýmislegt sem ég hefði vel getað sleppt...

Og þar kem ég inn á eina af þessum afbökuðu hugsunum sem ég bý yfir þegar kemur að mat. Ég vil svo gjarnan líta á hlutina sem bara annaðhvort/eða. Svart eða hvítt. Þannig get ég tekið heilu 100% dagana í striklotu, því um leið og ég er komin á flug, þá er það 100% vika. Þegar hinsvegar eitthvað út af bregður, aðstæður verða erfiðar eða ég fell einfaldlega í freistni, þá hættir mér mikið til að hugsa ,,fyrst ég er á annað borð fallin þá sakar ekki að..." og listinn yfir glappaskotin lengist og margfaldast. Ég verð því að reyna að temja mér að taka einn dag í einu, eina máltíð í einu, einn skammt í einu, og líta ekki á mistök í einni máltíð sem vilyrði fyrir mistök í þeirri næstu, til að klára vikuna annað hvort 100% eða 0%. Mig langar nefnilega ekki aðeins að geta tekið endalausa 100% daga í röð, heldur líka að geta farið út af sporinu, yppt öxlum og vippað mér aftur upp á það.

Kannast einhverjir fleiri við þennan vítahring?

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 00:10:30 / taka3

Vigtun 25.07.07



1,9 kíló fengu að fjúka í þessari viku, og vá hvað ég er sátt! Ég gerði eins og ég lofaði í síðustu viku (sem var algert klúður), og flaug yfir 5 kílóa markið. Fór og fékk mer nings laxabakka til að verðlauna sjálfa mig.

Dagurinn var reyndar alveg skrýtinn. Ég var á þvílíkri þeysireið í allan dag, fór beint af fundinum í jarðarför og þaðan beint í vinnuna. Mælingar fóru dálítið út í veður og vind, en ég reyndi að styðjast að mestu við það sem ég kann á þessu nú þegar. Í erfidrykkjunni fékk ég mér t.d. bara örlitla flís af brauðtertu á meðan ég sótti kúffullan disk af tertum fyrir mömmu. Síðan tekur við enn skrýtnari vika þar sem ég er að vinna eins og berserkur, keyra til flateyrar, vera við jarðsetningu, og flytja út því leigusamningurinn minn rennur út um næstu mánaðarmót. Nú þarf ég því allt það pepp sem ég get fengið (og vonandi næ ég líka smá tíma aflögu til að búa til ÓGEÐSLEGA mikið af gulrótarnammi til að eiga til góða - Heidi þú ert meistari). Ég er komin á skrið og fjandakornið, ég er ekki að fara að hætta núna :)

Eitt að lokum. Mér finnst það nett sorglegt en ef ég myndi setja upp "fyrir og eftir" myndir þá myndu "fyrir" myndirnar mínar sennilega vera stúdentsmyndirnar mínar. Það má eiginlega ekki á milli sjá af þessum með húfurnar, hvor er ég og hvor er kransakakan ;)
Ég var dálítið stressuð að máta kjólinn aftur, því hann er gullfallegur úr silki, og stúdentsgjöfin mín frá kærastanum mínum. Ég hefði því verið frekar svekkt ef ég mjókkaði úr honum, en viti menn, hann er eiginlega bara ennþá flottari en áður. Pæling að léttast um kannski 5 kíló í viðbót og taka svo nýjar stúdentsmyndir, svona upp á grínið?

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 00:23:01 / taka3

Hitt og þetta

Megrunarhetjan hefur mætt nýjum erkifjanda. Það er vinna. Öllu heldur, vinna frá morgni til kvölds, alla daga, öll kvöld. Ég vinn á kaffihúsi á daginn og veitingastað á kvöldin, og eins og ég nefndi í síðustu færslu þá er þessi vika alveg klikkuð.

Og hér er vandamáið: Mér er farið að veitast tiltölulega létt að halda mig innan marka hvað varðar sykur og kolvetni og svoleiðis. Reyndar er ég öll af vilja gerð að koma þessum mat ofan í mig, nema hvað, túristaseasonið er komið á fullan skrið, og ég hef nánast aldrei tækifæri til að setjast niður og borða allan þennan blessaða mat. Í dag borðaði ég því hádegismatinn minn í smáskömmtum frá tólf til hálffjögur, fór þá að reyna að vinna í einhverjum mjólkurskammti, og svo borðaði ég kvöldmatinn í hollum frá átta til tíu. Vatnið fór að sjálfsögðu fjandans til, og nú sit ég hér, klukkan orðin korter í tólf, og ég er útþanin eftir að hafa þambað eitt mjólkurglas, borðað heilan stóran banana og gleypt teskeið af olíu, og er að velta fyrir mér hvort ég eigi að fara að vinna í einum og hálfum líter af vatni... æi, lifrin fær að vinna yfirvinnu í kvöld, ég er farin í háttinn ;)

Ég bjóst alltaf við því að ég myndi engjast, kvarta og kveina yfir þessum ömurlega fitusnauða sykurlausa mat sem ég þyrfti endalaust að vera að borða. Nú stend ég mig að því að þrá ekkert heitar en að setjast niður í rólegheitunum og borða grillaða kjúklingabringu og sellerírótarfranskar. Ætli þetta megi ekki bara flokkast sem jákvætt :D

Varðandi Spán, þá fer ég þangað í lok ágúst, nánar til tekið til Granada. Ég veit ekki alveg hvað ég er að álpast þangað, ég sé það líklega þegar ég kem þangað. Eina planið er að geta talað spænsku reiprennandi, sjá Alhambra höllina, fara yfir til Marokkó, og gerast fastakúnni á einhverju af kaffihúsunum þarna á svæðinu, já, og halda áfram í átaki ;) Ég er búin að skoða aðeins DDV á Spáni, það eru fundir aðeins klukkutíma frá borginni sem ég mun búa í, en ég veit samt ekki hvort ég nenni að taka strætó í klukkutíma í hverri viku til að fara á fund á máli sem ég skil ekki alveg 100%. Þar að auki skilst mér og minni ryðguðu spænskukunnáttu að fundir séu ekki haldnir þessa dagana, frestað um óákveðinn tíma. Það er samt ráðgjafi þarna, sem ég er að spá í að setja mig í samband við, og gá hvort hún lumi á einhverjum góðum uppskriftum sem miðast við spænskt mataræði :D Ég verð í fjóra mánuði, en planið er að halda áfram í átaki, og umfram allt að halda áfram að blogga. Vona að ég verði ennþá gildur meðlimur í átaksbloggara krúinu þó ég sé eitthvað að vesenast í heitu löndunum

Vigtun á morgun, og ég hlakka óneitanlega dálítið til. Þetta er ekki búin að vera 100% vika, en örugglega 95%. Ég get líka ímyndað mér að átaksbloggheimurinn lifni talsvert við í kringum vigtanir, þá hafa allir frá einhverju að segja. Hlakka til að heyra hvernig ykkur öllum gengur!

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 02:39:32 / taka3

Góður laugardagur

Ætlaði bara að láta vita af mér. Planið var alltaf að skrifa eitthvað inn á hverjum degi en það er víst kominn sunnudagur, þar sem klukkan er að verða hálfþrjú ;) Síðasta vika var greinilega þarft spark í rassinn, því ég tók þriðja 100%daginn minn í röð í dag. Hann byrjaði reyndar dálítið skringilega þar sem ég vaknaði vel eftir hádegi (allt þetta hjólerí í gær hafði greinilega sitt að segja ;)) svo ég borðaði eiginlega morgunmatinn minn sem hálfgerðan forrétt fyrir hádegisverðinn. Mér finnst betra að vakna fyrr, það er hálfskrýtið að vera bara búinn að vera vakandi í tæpan klukkutíma en vera samt búinn að innbyrða tvær brauðsneiðar, 30g af morgunkorni, 1 egg, 50g af köldum kjúkling og 300g af grænmeti áður en maður nær að nudda stírurnar úr augunum.

Kvöldið var svo algert æði. Ég grillaði grænmetisspjót og afbrigði af tzatziki kjúklingnum með fersku rósmaríni og timían, og extra miklum hvítlauk að sjálfsögðu (og tyggjó í eftirrétt til að vera húsum hæf ;)). Síðan kom vinkona mín í heimsókn og við borðuðum eplaböku með ís (allt DDV-vænt að sjálfsögðu). Nú á ég líka gulrótarnammi í frysti sem ég get gripið í þegar aðrir á heimilinu hakka í sig kókosbollur og lakkrís!

Ein spurning: Í næstu viku verð ég að vinna ýmist 12 eða 15 tíma vinnudaga alla daga fram á föstudag... Hafið þið einhver góð ráð um eitthvað fljótlegt sem hægt er að grípa með sér, eða rétti sem hægt er að laga fyrirfram og eru góðir kaldir? (Það er enginn örbylgjuofn í vinnunni).

Gangi ykkur annars öllum vel :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 00:03:51 / taka3

Hjóladagurinn mikli

Ég er að reyna að skoða þetta átak út frá fleiri pólum en bara að léttast á vigtinni og líta betur út í bikíní. Í dag tók ég hreyfinguna rækilega fyrir, án þess þó að eyða miklum tíma í hana. Einfalt: Ég hjólaði allt sem ég fór, og vá, það var ekki lítið. Í dag hjólaði ég samtals úr Lönguhlíð niður á Skólavörðustíg, þaðan aftur upp í Lönguhlíð, svo niður á Bárugötu, þaðan upp á Hrafnistu í Laugarnesinu, og svo aftur Lönguhlíð. Og allt var þetta bara leið til að komast milli þeirra staða sem ég þurfti að komast á, og ég þurfti aldrei að finna bílastæði eða taka bensín!

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu eftir "miklar" rannsóknir (eða, já, þögla eftirtekt) að það tekur jafn langan tíma fyrir mig að hjóla í vinnuna og það tekur að keyra þangað, leita að stæði, leggja í stæði, og labba úr stæðinu (oft talsverðan spöl) í vinnuna. Þetta er því klárlega málið! Það var líka svo frískandi að hjóla loksins í almennilegri rigningu, verða rennandi blautur og anda fersku lofti í lungun. Rigning síðustu daga hefur skolað burt síðustu örðunum af lognmollu hjá mér, 100% dagur í dag og ég hlakka til að fara almennilega líkamlega þreytt að sofa.

P.S Er ég alger lúði ef ég er 19 ára og eyði föstudagskvöldi í að heimsækja ömmu mína, hjóla um víðan völl með heyrnartól á eyrunum og blogga um átakið mitt? Ojæja, þá það, kærastinn minn er þó búin að klófesta vídjóspólu! Húrra! Kvöldinu bjargað! (þó ég sofni örugglega áður en hún er hálfnuð).

Gangi ykkur öllum vel, og takk æðislega fyrir kommentin, þau hvetja meira en ykkur grunar :D!

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Hola España
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1613 dögum
RSS tengill